Raflagnir í nýbyggingar og breytingar

Heildarraflagnir í nýbyggingar og breytingar á eldri húsum á Akureyri og um allt Norðurland, frá teikningu að lokaúttekt.

Nýbyggingar

Við sjáum um raflagnir í einbýli, fjölbýli og atvinnuhúsnæði. Það nær yfir lagnir, rafmagnstöflur, lýsingu, tengla, smáspennulagnir og tengingu við heimtaug. Við vinnum í samráði við byggingarstjóra og aðra iðnaðarmenn svo verkið gangi í réttri röð.

Við sjáum um tilkynningar til HMS þegar verki lýkur.

Breytingar og endurnýjun

Í eldri húsum eru rafmagnstöflur og lagnir oft komnar til ára sinna. Algeng verk eru ný rafmagnstafla með lekastraumsrofum, fleiri tenglar í eldhús og bað, ný lýsing og endurnýjun á gömlum lögnum í tengslum við aðrar framkvæmdir.

Það borgar sig að fá rafvirkja snemma inn þegar verið er að gera upp, áður en veggjum er lokað. Þá er einfaldara og ódýrara að leggja fyrir því sem á að koma síðar, til dæmis hleðslustöð eða hússtjórnunarkerfi.

Hönnun og teikningar

Við hönnum og teiknum raflagnir og lýsingu. Þegar sami aðili sér um teikningu og framkvæmd verður minna um misskilning og auðveldara að bregðast við breytingum á verktíma.

Hvernig verkið gengur fyrir sig

  1. Skoðun og tilboð. Við förum yfir teikningar eða skoðum aðstæður og gerum tilboð.
  2. Teikning. Ef raflagnateikningu vantar getum við séð um hana.
  3. Framkvæmd. Lagnir, töflur og búnaður sett upp í samráði við aðra á verkinu.
  4. Frágangur og úttekt. Kerfið er prófað og mælt og verklok tilkynnt til HMS.

Algengar spurningar

Takið þið að ykkur minni verk?

Já. Við tökum að okkur verk af öllum stærðum, allt frá því að bæta við tenglum upp í heilar nýbyggingar.

Hvað kostar að skipta um rafmagnstöflu?

Það fer eftir stærð hússins, fjölda greina og ástandi lagnanna. Við skoðum aðstæður og gerum tilboð.

Önnur þjónusta

Hleðslustöðvar fyrir rafbíla
KNX hússtjórnunarkerfi
Plejd snjallstýring og pottastýringar

Ertu að byggja eða gera upp?

Hringdu eða sendu okkur línu. Ef teikningar liggja fyrir er gott að senda þær með.